HJÁLP
Hér fyrir neða getur þú fundið svör við algengum spurningum. Þessi listi er ekki tæmandi og því, þökk sé samskiptum við notendur eins og þig, getum við bætt hann ef þörf er á. Okkar takmark er ávalt að bjóða upp á eins hnökralausa og þægilega notendareynslu og við mögulega getum. Ef þú finnur ekki það svar eða lausn sem þú leitar að, ekki hika við að hafa samand í síma (+354) 585 4300 eða í gegnum conferences@icelandtravel.is.
Svar: Ef rukkun fór í gegn en meira en eina tilraun til þess að borga var framkvæmd, eða of langan tíma fór í að setja inn númerið, þá kemur fyrir að kerfið haldi staðfestingu aftur þar til við höfum litið á skráninguna. Ef allt er rétt þá færðu handkeyrða staðfesting frá okkur, sem þú ættir að fá innan 24 tíma (mán-fös). Þetta er eingöngu út af öryggisástæðum. Aftur á móti, ef rukkun fór ekki í gegn munt þú einnig fá póst frá okkur sem tekur þetta fram, sem og hlekk sem hleypir þér inn á skráninguna til að ganga frá borgun.
Svar: Já, en það er nauðsynlegt að þú klárir skráningarferlið með þær dagsetningar sem eru í boði og hafir svo samband við okkur til að fá framlengingu á bókuninni. Það er mikilvægt að taka fram að, ef bókunin er gerð innan við 2 mánuði fyrir ráðstefnuna getur framboð verið mun minna en ella. Því mælum við með að hafa samband með eins miklum fyrirvara og unt er.
Svar: Fyrir ákveðnar ráðstefnur bjóðum við upp á þann möguleika að skrá marga saman svo að allt komi á einn og sama reikning og borgun. Aftur á móti, þá verður hver bókun að fá sína sér skráningu, og þá sérstaklega þegar um er að ræða bókun á gistingu. Ef nefndur „fítus“ er ekki í boði fyrir þá ráðstefnu sem þú ætlar þér að taka þátt í, mælum við einfaldlega með því að þú hafir samband í gegnum eftirfarandi póst:
conference@icelandtravel.is
Svar: Það geta verið margar ástæður fyrir þessu. Algeng ástæða er að vafrarinn sem þú ert að nota sé úreltur eða að kóðinn okkar sé af einhverjum sökum ekki samþykktur af þeirri útgáfu sem þú ert með. Venjulega gengur okkur best með Chrome og Firefox þar sem t.d. Internet Explorer og Safari valda oftar vandræðum (fyrir óteljandi ástæður). Vert þú viss um að allir gluggar séu rétt út fylltir (þeir sem eru með * eru skyldugluggar) og að síðan hafi ekki „hangið“ of lengi (síðurnar geta runnið út á tíma ef það líður of mikil tími á milli hleðslu á síðu). Svo síðast (en alls ekki ólíklegt) þá geta mistök í kóðanum okkar hafa valdið þessu (við erum öll mennsk og gerum mistök eins og allir). Í því tilfelli hafðu einfaldlega samband í gegnum
conference@icelandtravel.is , útskýrðu vandan og við munum kippa honum í lið eins fljótt og hendur leyfa.
Svar: Augljóslega, ef ekki er nóg heimild á kortinu þá mun rukkunn ekki fara í gegn. En við reiknum fastlega með að þú ert alveg viss um að svo sé, því getur ástæðan verið tengd ákveðnum öryggisráðstöfunum sem annaðhvort kreditkortafyrirtækið eða bankinn þinn setja á kortið. Í mörgum tilvikum, þegar verið er að borga á „minni“ vefsíðum (stórar síður í þessu tilfelli eru Amazon, stór flugfélög sem og aðrar stórar smásölusíður) þarf oft að láta bankann eða kortafyrirtækið vita svo að þeir leyfi rukkunn að fara í gegn. Einnig, ef þú ert að nota fyrirfram greitt kreditkort er mikilvægt að vera viss um að búin sé að setja pening inn á kortið og einnig (eins og var nefnt að ofan) að bankinn og/eða kortafyrirtækið hleypi rukkunn í gegn. Taka þarf fram að, ef þú ert Íslendingu og skráningin er í evrum þá munt þú ekki geta borgað með íslensku korti. Í þessu tilfelli hafðu samband í gegnum
conference@icelandtravel.is
Svar: Besta lausnin við þessu er að halda niðri Ctrl takkanum á lyklaborðinu og nota svo hjólið á músinni til að stækka og minka síðuna (á fartölvum getur verið að þú getir gert þetta með því að nota tvo fingur ef þú ert ekki með mús).
Svar: Flestir hlekkirnir eru stilltir til þess að „poppa upp“ og ef þú ert með „popup blocker“ á vafraranum er nauðsynlegt að smella á aðvörunar skilaboðið sem ætti að byrtast við hliðina á URL glugganum (þar sem þú skrifar veffangið), og velja að leifa „popup“ fyrir viðkomandi síðu.
Svar: Það er mögulegt að fyrir viðkomandi ráðstefnu séu öll hótel herbergi þegar uppseld, og þá sérstaklega ef bókun er framkvæmd með stuttum fyrirvara. Aftur á móti, þá getur verið að ekki séu laus herbergi fyrir ákveðnar dagsetningar en ekki allar. Við mælum því með að prófa að bóka færri nætur og hafir svo samband svo að við getum aðstoða þig að finna gistingu fyrir þær nætur sem vantar.
Svar: Eftir skráningu ættir þú að hafa fengið póst með hlekk sem tekur þig beint inn á skráninguna þína þar sem þú getur framkvæmt flestar þær breyting sem þú vilt. Ef viðkomandi breytingar bera með sér aukinn kostnað getur þú einfaldlega haldið áfram þar til komið er að borgunarsíðunni og framkæmt borgun á mismuninum með kreditkorti. Aftur á móti, ef breytingin er þér í hag, og hún er einnig framkvæmd innan þess tímaramma sem afbókunarskilmála okkar taka fram, þá þarftu ekki að gera annað en að gera breytinguna og hafa svo samband við okkur í gengum
conference@icelandtravel.is svo að við getum framkvæmt endurborgun (hvort sem hún sé að hluta- eða heildarupphæð).
Svar: Við viljum endilega tala við þig! Þú getur hringt í okkur í síma (+354) 585 4200. Skrifstofu tímar eru 9:00 – 17:00 frá mánudegi til föstudags, en aftur á móti þá er fólk venjulega mætt um 8:00 og margir vinna eins lengi og til 18:30. Ef við erum í vinnunni, þá svörum við símanum.
Svar: Ef þú hefur þegar byrjað á skráningarferlinu OG komist að minsta kosti að Samantektarsíðunni (Summary), þá mun kerfið búa til skráningu með mótteknum upplýsingum. Þegar þú reynir svo að búa til nýja skráningu, með sama netfangi, mun kerfið neita að taka við skráningunni þar sem önnur (ófrágengin) skráning með viðkomandi netfangi er þegar til staðar. Að staðaldri, þegar skráning mistekst, eða er skilin eftir ófrágengin, sendum við ítrekunarpóst til að láta þig vita og innifalinn er hlekkur sem tekur þig beint inn á undannefnda skráningu (sem sparar þér að þurfa endurtaka allt). Samt sem áður er nauðsynlegt að taka fram að, ef þessi skráning var gerð um helgi, eða fyrir utan vinnutíma, er mögulegt að undannefndur póstur verði ekki sendur strax. Í þessu tilfelli mælum við með að senda okkur póst á conferences@icelandtravel.is og biðjir um að send fá sendan hlekk inn á viðkomandi skráningu.